Ostakörfur
Ostakörfurnar innihalda t.d. ýmsa sérvalda íslenska og erlenda osta auk þess sérlagaða rjómaosta sem eru hræðir í Ostabúðinni, sultur, kex eða baguette ( heimalagað brauð). Þær eru á verðbilinu 3000 kr. og upp úr.
Sælkerakörfur
Sælkerakörfurnar innihalda t.d. sérvalda osta, íslenska og erlenda, olífur, belgískt eða franskt súkkulaði, salami. sérverkaða forrétti, sultur og kex eða heimabakað brauð. Í stutu máli sagt góð blanda sem freistar alla sanna sælkera. Þær kosta frá 4000 kr. og upp úr.
Það er sjálfsagður hlutur að verða við óskum um að setja fylgihluti í körfurnar t.d. léttvín, bækur eða geisladiska en betra er þá að fólk komi með þá áður en karfan er sett saman.
