OSTABORÐ
Í Ostabúðinni eru í boði kúa-, geita- og kindaostar. Gott úrval er af íslenkum ostum og svo ýmsum erlendum ostum, t.d. dönskum, norskum, frönskum, ítölskum og spænskum. Auk þess eru gerðir ýmsir rjómaostar að hætti Ostabúðarinnar.
FORRÉTTA- OG ÁLEGGSBORÐ
Í forétta- og áleggsborðinu má m.a. finna sérverkaða kjöt- og fiskmeti t.d grafið ærfillet og hrossafillet, heitreyktar gæsabringur og svartfuglsbringur, heimalagað paté, laxatartar og margt fleira. Af áleggi þá má helst nefna þrjár tegundir af salami og pepperonistubba. Auk þess er í boði ítalska hráskinkan frá Parma og spænska Serrano hráskinkan. Fimmtudaga, föstudaga og laugardaga er mun meira úrval af forréttum.
Af vörum sem eru í boði í Ostabúðinni má helst nefna ítalska pastað og pastasósur frá Rustichella, mikið úrval af balsamic sem nær allt að 50 ára aldri, ólfíuolíur frá Ítalíu, Spáni og Frakklandi, ekta franskt gæsa-og andalifrar “foie gras” og ekta belgískt og franskt súkkulaði. Auk þess má nefna að á hverjum degi er bakað brauð á staðunum og ávallt eru í boði ostakökur og -dessertar.
